Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Útskrift

Gay Pride

New York

.

28. júlí 2009 klukkan 18:00
Er að hugsa um að hætta að blogga, virðist enginn lesa þetta, facebook hefur greinilega náð yfirhöndinni í samskiptum fólks þessa dagana.
Annars var ég að bæta við gjafalistann minn svona ef að fólki langar að gefa mér innflutningsgjafir Wink

Ef að ekkert verður kommentað á þetta blogg þá held ég að ég læsi bara síðunni og hætti með hana... og já ég sé hvort að fólk kíki hér inni eða ekki...
Þannig að komment eru vel þegin Smile

Fréttir

10. júlí 2009 klukkan 20:41
Kannski kominn tími á frétti frá þessum bæ enda alveg fullt í gangi Wink

Byrjum á byrjuninni sem er ekki erfitt. Ég er búin að fá íbúðina afhenta og búin að vera að vinna í því á fullu að koma mér fyrir og er þetta allt að koma, samt alveg feikinóg eftir Wink Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og hressandi tími, takandi upp úr kössum fram á nótt og snúa öllu við held ég alveg örugglega 4x eða eitthvað álíka...
Var t.d. í því í gærkvöld að hengja upp myndir á eitthvað af þessum milljón nöglum sem að eru út um alla íbúð Smile Ætla að koma mér betur fyrir og síðan er aldrei að vita nema það detti inn myndir á facebook... hmmm meira með íbúðina jú ég elska hana fín stærð og það er bað, á samt eftir að vígja það. Hvenær ætli ég hafi tíma í það... Undecided
Annars eins og ég segi þá er ég að vinna í því að gera hana kósý og þegar það er búið þá er komið að innflutningspartýi, annars eruð þið alltaf velkomin í heimsókn, hringið bara í mig svo að ég sé nú örugglega heima Wink


Næsta mál á dagskrá er vinna fyrir næsta vetur og er hún komin í hús. Verð á leikskólanum Álfasteini sem er upp á Holti í Hafnarfirðinum og það verður algjör snilld. Mjög ánægð með að fá vinnu bara yfirhöfuð og get ekki neitað því að mig er farið að hlakka smá til að byrja, en ég byrja 12 ágúst bara. Styttist óðfluga í þetta... Verð á eldri deildinni og með krílunum þar Laughingþetta verður ógi næs. Verð þar allan næsta vetur eða um ókomna tíð, kemur svo bara í ljós hversu lengi ég nenni að knúsa krílin hehe Kiss


Fleiri fréttir... geðheilsan fer upp og niður, hún á sína góðu og slæmu daga en sólin á það þó til að létta lundina fullt. Enda sól bráuðnauðsynleg, samt komin með smá bóndabrúnku og síðan svona "hár" brúnku líka, s.s. brún í framan en hvít undir hárinu Surprised

Held að ég sé að verða semí djammfíkill... Djamm um síðustu helgi sem var mjög skemmtilegt, ég samt aðeins of edrú Innocent ábyrgðin var allt of mikið og mig vantaði heilmikið kæruleysi Tongue out En spurning hvort að maður bæti úr því núna um helgina hehe

Framundan eru skemmtilegir tímar ferðalaga og útilega, ekki útileiga eins og annar hver maður á facebook skrifar... Jha nema viðkomandi ætli bara að leigja úti Wink

Veit ekki hversu mikið ég blogga þar sem að veðrið er roooosa gott
Cool  En með lækkandi sól er aldrei að vita hvað mér dettur í hugLaughing

já já ég lifi

05. júlí 2009 klukkan 21:35
Ég er semsagt á líf en varla mikið... Er að vinna í bloggi með alveg FULLT af fréttum... hendi því inn um leið og ég er komin með netið Smile sem ég vonast til að verði bara á morgunn eða þriðjudaginn Wink
Þangað til þá knús á ykkur fallega fólk

Andleysi

16. júní 2009 klukkan 22:14
Hér á bæ ríkir mikið andleysi og er beðist velvirðingar á þvi, það orsakar síðan bloggleysi...

Er annars komin heim frá Tyrklandi og þetta var alveg hin skemmtielgasta ferð ;) búin að henda einhverjum myndum inn á facebook svo að þeir sem eru forvitnir geta kíkt þangað inn...

Heilsufræðiprófið var í gær og mér gekk betur en síðast, vona bara að ég nái því í þetta sinnið...

Við tekur þá lokaritgerðarskirf sem að verður tekin með trukki og spýtt í lófana enda ekki langur tími til stefnu...

Annars gengur lífið sinn bara sinn vanagang, vinna, kúra, vinna, sofa, vinna, sofa, vinna og sofa...

TRÖKÍ

08. júní 2009 klukkan 18:42
Bara snilld :D

Orðin frekar sólbrennd ;) og líka komin með bikinifar, sem er ÓTRÚLEGA MERKILEGT því að þetta er jú ég ;)Annars er bara búið að vera fuuuullt að gera, komum hingað um 2 aðfarnótt lalugardags og þá var eiginlega bara beint í bólið, sofnuðum þó ekki strax, því það var aaaaltof heitt hjá okkur. Asnarnir við skildum kælinguna eftir í gangi og sváfum ekkert fyrir látum, datt samt ekkert í hug að slökkva á henni hehe Laugardagurinn var síðan bara sólbað, tyrkneskt bað og meira sólbað og chill bara, kvöldið var síðan að sjálfsögðu niður í bæ á eitthvað froðudiskó. Froðan var reyndar ekki komin þegar ég fór en það er aukaatriði...
Sunnudagurinn var hvað, vó bara í gær og ég man ekkert hvað við gerðum! jú ég man það víst!!! Fórum í vatnsrennibrautargarð og það var bara sjúklega gaman, lágum í sólbaði rooooosalega mikið. Ótrúlegt en satt þá lág ég frá svona ca 12 þar til við fórum um 14 og það var bara nokkuð næs. Sofnaði reyndar þannig að það gæti hjálpað e-ð til hehe Þrátt fyrir gífurlega mikinn sólaráburð þá er ég samt frekar brunnin á bakinu sem er ekki spes... Er síðan með sólarexem á ristunum líka sem er alls ekki spes en þetta er samt svooooo gaman að það er horft framhjá öllu þannig.
Í dag var það síðan bara bátsferð þar sem sólbað var aðalmálið, hélt mig reyndar í skugganum að mestu leyti en skellti mér upp á dekk í smá stund seinnipartinn með 45+ held ég og svaf smá hehe

En nú er nóg komið í bili, myndir koma þegar ég kem heim...
Heyrumst fallega fólk ;)

JEYJ

05. júní 2009 klukkan 10:29
FARIN TIL TYRKLANDS :D

ROOOOSALLEGA ánćgđ

26. maí 2009 klukkan 21:10
ég er s.s. búin að festa íbúð til að leigja með litlu diddunni minni og er hún staðsett í hliðarhjalla í kópavogi og mér finnst það ALGJÖR SNILLD :D
Þá er eins gott að einbeita sér að því að læra núna fyrir heilsufræðiprófið og síðan hefst bara "dekoresjon" :D

ROOOOOOOOOOOOOOOSA HAPPÝ

Klárlega gerir þetta lesturinn "skemmtilegan"

ROOOOSALLEGA hneiksluđ

22. maí 2009 klukkan 17:14
Ég var í Ríkinu fyrir hana systur mína, sem er ekki frásögufærandi, nema hvað að þegar ég ætla að borga með kortinu mínu þar sem að kennitalan mín stendur og þar stendur 84 = 25 ára!!! Þá biður konan mig um ÖNNUR SKILRÍKI og ég horfði á hana og hváði, já ég þarf að sannreyna aldur þinn Surprised og ég hváði aftur og sagði við hana, bíddu ég er tuttugu og fimm ára er búið að breyta aldrinum eða hvað? og rétti henni ökuskýrteinið mitt...

sko ég veit að ég er kannski pínu ungleg í framan en EKKI FIMM ÁRUM yngri en ég er í rauninni sko!!!

Já ég næ þessu ekki... er eins og ég segi rooooooosalega hneiksluð og verð það næsta ÁRIÐ!!!

Bloggedý blogg

17. maí 2009 klukkan 23:51
Kannski maður komi með eins og eitt skemmtilegt og hress blogg, svona til tilbreytingar Wink Reyndar ekki mikið nýtt sem hefur gerst síðan síðast, en meina lífið er samt skemmtilegt Smile

Helgin er búin að vera frábær í næstum alla staði Smile Föstudagurinn var bara chill, hjálpaði Hafdísi að flytja eftir vinnu og síðan var skundað í bíó á Angels and demons og ákváðum við að leyfa pabba gamla að koma með. Rosa góð dóttir mar... eða það finnst mér Wink Komið heim og upp í ból og lúllað roooosalega mikið eða alveg til kl 9:00 á laugardeginum.

Planið var að hitta hana Amöndu, sem var með mér í skiptináminu, um kl 10 og fara að filma fyrir lokaverkefnið hennar. Við brunuðum upp á Hellisheiði, nánar tiltekið Ölkelduháls, þar fundum við þennan líka frábæra stað til að filma á. Gufustrókar og bara fallegt umhverfi, tók nokkrar myndir sem að liggja inn á andlitsbókinni Wink Síðan var bara brunað heim í Hafnarfjörðinn og út á svalir og legið í sólbaði fram undir hálf 7 þegar Hafdísin mín birtist. Kveikt á grillinu og grillað var þetta líka ótrúelga góða lamb, borðað ungi fögrum söng Jóhönnu Guðrúnar og Alexander Rybak... Skemmtum okkur vel yfir stigagjöfinni og er ég bara sátt með úrslitin...  held að við þurfum ekkert að ræða þetta neitt frekar Tongue out Eftir að allt var klárt var brunað til Hildar Eddu og hún sótt, síðan brunað í Breiðholtið og Hafdís og Villi jr sótt og síðan brunað niður á NASA Laughing þar sem að gleði tók völd fram til eitthvað á milli 3 og 4. Þá skutlaði ég Hafdísi og Guðrúnu Ásgeirs heim og skundaði sjálf heim.
Sökum þess hversu gott veðrið var þá tímdi ég ekkert að fara að sofa, hennti mér því úr djamm-gallanum og í útifötin og niður á höfn þar sem að ég tók nokkrar myndir. Ákvað síðan að skríða heim um 5 og áttaði ég mig þá á því að ég var roooosalega þreytt, enda sló ég met í því að sofna fljótt Wink
Sunnudagurinn var runninn upp bjartur og fagur, reyndar áður en ég fór að sofa, en hann var það líka þegar ég vaknaði. Kom mér í föt og upp á Helgafell var stefnan sett, fyrir ofan Kaldársel. Glampandi sól og sjúklega gott veður, smá vindur á leið upp, samt ekki meira en það að ég bretti upp buxurnar og stuttermabolurinn var látinn nægja! Mjög óvenjulegt fyrir kuldakreistuna mig Wink Eftir Helgafellið var komið að Kollu og grísunum tvem úr Hveragerði, þar sem að við skelltum okkur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og skoðuðum alveg fullt af dýrum og krúttuðumst Wink
Renndum síðan niður í bæ og heyrðum aðeins í fagnaðarlátnum í tilefni af heimkomu Eurovision-faranna allra. Ákvaðum síðan bara að keyra mig í Hafnarfjörðinn og Kolla og grísir brunuðu í Hveragerði...

Eftir matinn var síðan hringt í mig og mér sagt að koma mér hið snarasta niður í Nauthólsvík, þar sem að spila átti blak... Eitthvað varð lítið úr blakinu en þess í stað varð meira úr spjalli og kósýheitum Wink Var síðan komin heim um 10 leytið og þá nú bara við chill fram að bóli og reyna að skirfa þetta blogg. Ásamt reyndar mjög áhugaverður msn-spjalli og þökk sé ákveðnum aðila þá hlakkar mig enn meir til morgundagsins Wink

Síðan er það bara áframhaldandi vinna þessa vikuna, þar sem að restin af fólkinu byrjar á morgunn og það verður alveg bara fínt Wink

Vona að þetta svali þörf fólks á bloggleysi mínu undanfarnar vikurnar...

Prófum lokiđ

14. maí 2009 klukkan 22:40
Sem eru reyndar gamlar fréttir...
Byrjaði að vinna í gær, það er bara alveg hreint ágætt.
Amanda er síðan hér á Íslandi sem er bara næs Wink helgin verður eitthvað spennandi, vitum ekki alveg hvað á að brasa...
Hrafnhildur er síðan farin norður í sauðburð Frown en hún kemur aftur á mánudaginn Smile
Var í útvarpinu á rás 1 í gær, fyrir það eitt að vera ég sjálf Tongue out
Fleiri fréttir eru ekki í boði frá fréttastofu Írisar Óskar, búast má við fleiri og innihaldsríkari fréttum um og eftir helgi

Ég og mitt

  • Nafn: Íris Ósk Kjartansdóttir
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: Verđandi íţróttakennari á leikskóla
  • Um mig: Ofvirkur íţróttaálfur sem stundar íţróttakennaranám á Laugarvatni og útskrifast ţađan sem íţróttakennari nćsta i í vor ;) Ţangađ til vinn ég á leikskóla og elska vinnuna mína ;)

Hnúkurinn